No. 1
Fjármál
Kennslumiðstöð er með sér fjárhag og þarf að standa skil á sínum málum fyrir kennslusviði. Í þessu felst gerð fjárhagsáætlunar, yfirlit yfir innkaup, reikningagerð og daglegt utanumhald fjármála.
|
No. 2
Vefsíða
Kennslumiðstöð er með eigin vefsíðu kemst.hi.is/ og er hún á íslensku og ensku. Á síðunni eru auglýst námskeið fyrir kennara, þar eru einnig ýmsar upplýsingar er snúa að kennslu við Háskóla Íslands.
|
No. 3
Námskeið og leiðbeiningar
Hluti af starfi verkefnastjóra er að halda námskeið og búa til leiðbeiningar um ýmis efni er snúa að störfum háskólakennara.
|
Diplóma í grafískri hönnun
Ég hef mikinn áhuga á ljósmyndun og grafískri vinnslu í tölvum. Til að styrkja mig í því fór ég í tveggja ára nám í grafískri hönnun hjá Borgarhólsskóla. Þar er lögð áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt að ýmsum verkefnum, m.a. ljósmyndun, vefvinnsla, grafísk hönnunarvinna, upptökur og klippingar og vinna við prentverk.
|